VALMYND ×

Jólafréttir

Þessar síðustu vikur hafa að mestu einkennst af vinnu við jólaverkefnið sem er samstarfsverkefni skólanna á Þingeyri, Flateyri og Suðureyri. Nemendur eru nú að leggja lokahönd á verkefnin sín sem verða sett upp á sýningu í Safnahúsinu á Ísafirði og er mikil tilhlökkun. Yngstu nemendurnir, í 1.–2. bekk, hafa unnið fjölbreytt verkefni í íslensku, samfélagsfræði og list- og verkgreinum þar sem þau hafa meðal annars búið til jólasvein, lært og samið ljóð, fræðst um jólahefðir og tekið viðtöl um mismunandi venjur. Nemendur í 4.–7. bekk hafa unnið með jól í öðrum löndum og hafa nemendur safnað upplýsingum um jólamat, skreytingar, trú og tónlist og sett afraksturinn fram á plaköt sem fara bæði á sýninguna og á heimasíðu skólans. Framundan er síðasta vikan fyrir jól þar sem eitthvað verður um uppbrot og jólastúss. Það hefur verið hefð við skólann að skrifa jólakort og ætlum við ekki að breyta útaf þeirri hefð. Annað sem verður á dagskrá er t.d. piparkökuhúsabakstur, Tarzan leikur í íþróttahúsinu, jólaball í leikskólanum og að lokum dýrindis jólamatur á Gunnukaffi. 

Njótið vikunnar