VALMYND ×

Nemendafréttir af skólastarfi

1 af 3

Vikupóstur frá nemendum

Við vorum að kveikja eld og skauta. Við skrifuðum óskir og brenndum þær á bálinu. Við vorum að leika í snjónum. Hjá skautasvellinu fengum við heitt súkkulaði sem Jóna bjó til. Við unnum mörg hópaverkefni til dæmis að skrifa sögu í sameiningu þar sem við áttum að skrifa um sérstaka hluti og í dag gerðum við verkefni um hvernig okkur geti liðið vel í skólanum. Við skrifuðum öll um jólafríið. Jólaskrautið var tekið niður og sett í geymslu. Nokkur fóru í Asna í körfubolta, snjóbolta og snjóboltastríð. Við vorum að skauta í íþróttum og fórum í sund. Í nestistímanum var byrjað að lesa bók sem heitir: Skólastjórinn eftir Ævar Þór Benediktsson. Hún er mjög góð og okkur langar að heyra meira.

Góða helgi frá nemendum í GÖ