VALMYND ×

Skólafréttir

Í Grunnskólanum á Flateyri er fjölbreytt og lifandi skólastarf. Við byrjum alla morgna á lestrarþjálfun og yndislestri en undanfarið höfum við unnið markvisst með 100 – 200 algengustu orðin af síðunni 100ord.is. Nemendur lesa orðin fyrir kennara sem skráir tímann og er þetta gert daglega. Við hvetjum forráðamenn til að prófa þessa æfingu einnig heima.

Alla miðvikudaga er það sem við köllum 10 mínútna ritun þar sem nemendur velja á milli tveggja hluta sem á að skrifa um t.d. íþróttahús eða sundlaug, þau eiga að lýsa hlutnum án þess að nefna hann á nafn. Þetta getur verið vandasamt en er mjög góð æfing í að koma hugsunum um eitthvað ákveðið frá sér og niður á blað. Nemendur eiga hver sína stílabók eingöngu fyrir þetta ritunarverkefni og það verður áhugavert að fylgjast með því hvernig þróunin og framfarirnar verða.
Við ræddum um orðið, viðhorf, og hvað það þýddi. Það komu ýmsar hugmyndir fram t.d. að horfa saman (við horfum), en í sameiningu fundum við út að það þýðir með hvaða huga við tökumst á við verkefni í leik og starfi. Við vorum sammála um að ákveða ekki fyrirfram að eitthvað væri erfitt og leiðinlegt heldur frekar að nálgast viðfangsefnin með jákvæðu viðhorfi.

Ræktunarárið er svo sannarlega byrjað hjá nemendum GÖ en það byrjaði hressilega síðastliðinn nóvember þegar dægradvöl gróðursetti tvö yrki af hvítlauk í bambahúsið.
Hvítlaukur þarf kuldatímabil til að mynda nýja geira en hann þarf að liggja í moldinni í heilt ár frá hausti til hausts til að verða myndarlegur. Okkur til mikillar undrunar kom hitabylgja í desember og hvítlaukurinn okkar fór af stað ótímabært. Spennandi að sjá hvort þeir nái að lifa fram að næsta hausti. Hugmyndir nemendanna eru mjög spennandi en metnaðarfyllsta hugmyndin er melónuræktun. 

Bambahúsið verður stútfullt af tilraunum í sumar og hvetjum við öll að kíkja þar við og sjá hvað er í boði. Tegundirnar eru margar en á næstu misserum byrjar forræktun á næpum, káljurtum af ýmsum sortum, ertum og baunum, tómötum, gúrkum, sólblómum, jarðskokkum og öðrum nytjablómum. 

Í list og verkgreinum er annarþemað neysla, nýting, nýsköpun og ræðum við þessi orð í upphafi hvers tíma. Öll verkefni annarinnar tengjast þessum orðum á einhvern hátt en fyrsta verkefnið var að búa til tambúrínu úr víðigreinum og áltöppum af glerflöskum. Hamraborg styrkti okkur með áltöppunum og voru þeir þrifnir vel fyrir kennsluna.

Núna erum við að einbeita okkur að textíl. Allir nemendurnir lærðu að lesa miðana á fötunum sínum til að sjá úr hverju þau eru búin til og eins og okkur grunaði var polyester í öllum flíkunum. Þau lærðu muninn á dýratrefjum (t.d. ull og silki) og jurtatrefjum (t.d. bómull og hör). Orðin tog, þel, halasnælda og kambur voru tekin fyrir og fengu öll að prófa að spinna þráð úr þeli sem þau skildu sjálf frá toginu.
Á næstu misserum munum við læra að lita textíl með jurtum úr nærumhverfinu. Í jurtalituninni munum við læra gamlar aðferðir og ræða mikilvægi þess að varðveita kunnáttu forfeðra okkar. 

Við hlökkum til áframhaldandi spennandi skólastarfs með nemendum okkar í GÖ.

Áfram Ísland