VALMYND ×

Dægradvöl

Boðið er upp á dægradvöl frá lokum skóladags til klukkan 16:00 mánudaga til fimmtudaga og klukkan 12:00-14:00 á föstudögum. Dægradvöl er í boði fyrir 1.-4. bekk og fer starfið fram í húsnæði grunnskólans. 

Stefna skólans er:

  • að tryggja börnum í 1. - 4. bekk áhugaverða, skemmtilega og örugga dvöl að lokinni hefðbundinni kennslu.

Markmið með starfinu í Dægradvölinni eru fyrst og fremst

  • að nýta leik sem mikilvæga uppeldisaðferð.
  • að virkja skapandi hugmyndaflug sérhvers barns á þess eigin forsendum.
  • að kenna börnunum uppbyggileg samskipti við önnur börn og fullorðna.
  • að kenna börnunum kurteisi og snyrtimennsku í allri umgengni.

 

Skólastjóri er yfirmaður dægradvalar og er sótt um hjá honum.