Fréttir
Stóra íþróttahátíðin Bolungarvík
Stóra íþróttahátíðin fer fram á morgun í Bolungarvík. Nemendur okkar í eldri hóp hitta þar fyrir samaldra sína frá Drangsnesi, Suðureyri, Ísafirði, Reykhólum, Súðavík, Þingeyri og auðvitað Bolungarvík. Allir fengu að velja þær íþróttagreinar sem þeir vildu taka þátt í og síðan var valið af handarhófi í hópa og nemendur því í blönduðum hópum. Okkar nemendur skráðu sig í allskonar viðburði. M.a. fótbolta, körfubolta og skotbolta. Hátíðin verður sett kl 10:00 á morgun og stendur yfir til 18:40 annað kvöld. Katrín keyrir krakkana yfir og Unnur Björk verður með þeim í Bolungarvík frameftir degi. Þá taka hinar ofurvösku mæður Svana og Gunna við.
Eftir hátíðina geta krakkarnir farið í sund og gert sig til fyrir ballið sem stendur til kl. 22.00. Aðgangseyrir á ballið eru 1500 kr og þurfa nemendur lika að koma nestaðir og/eða með pening fyrir mat.

Matseðill októbermánaðar kominn á netið
Við erum búin að setja inn matseðil októbermánaðar fyrir leik- og grunnskólann.
Hann er að finna hér
Furðuleikar á Flateyri
Föstudaginn 6. október munu nemendur í 1.-7. bekk grunnskólanna á Suðureyri, Þingeyri og í Súðavík koma í heimsókn til okkar og taka þátt í "Flateyrarþrautinni". Nemendum verður blandað saman í hópa þar sem þau að leysa hinar ýmsu þrautir sem fara fram víðsvegar um þorpið í anda þáttanna Amazing race.
Á eftir verður nemendum boðið í mat og heimferð er um klukkan 12.
Það verður líf og fjör í þorpinu okkar þennan dag.
Norræna skólahlaupið
Samræmd próf í 7. bekk
Þema mánaðarins
Í fámennnum skólum eru möguleikarnir miklir og gaman að prófa sig áfram með nýjar aðferðir. Í vetur höfum við tekið upp þemavinnu sem er föst í stundatöflu allra nemenda á fimmtudögum á milli kl. 8:15 og 10:30. Í þemavinnunni bindum við okkur ekki eins mikið í námsbókunum heldur eru nemendur að læra sjálfstæð vinnu brögð, að spyrja sig gagnrýninna spurninga og vinna með mismunandi heimildir.
Fyrsta þemað á þessu skólaári er flóttafólk og eru krakkarnir eru mjög áhugasamir en þetta reynir líka á eins og með allt það sem er nýtt. Það verður spennandi að sjá afraksturinn í byrjun nóvember þegar þessu þema lýkur og nýtt tekur við.
Göngum í skólann
Í gær hófst "Göngum í skólann" og lýkur því með lþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 4. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.
Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskautar og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Á síðasta ári tóku milljónir barna í yfir 40 löndum viðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi voru um 70 skólar skráðir til leiks á síðasta ári og hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt í gegnum árin, en fyrsta árið voru þátttökuskólar 26 talsins.
Að Göngum í skólann verkefninu standa eftirtaldir aðilar: Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Samgöngustofa, Embætti Landlæknis, Ríkislögreglustjóri, Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Heimili og skóli og Slysavarnarfélagið Landsbjörg.
Við hvetjum alla krakka á Flateyri að ganga í skólann og þá sem koma með skólabíl að ganga að minnsta kosti frá N1 og í skólann.